15.11.2017
Hópastarf fyrir aðstandendur sem vera átti í kvöld fellur niður en verðum með fræðslu fyrir aðstandendur 7.desember kl 12:00. Nánar auglýst síðar
Lesa meira
02.10.2017
ATH! Fimmtudaginn 5.október mun KAON og Ráðgjafarþjónusta KÍ standa fyrir lokuðu námskeiði fyrir lækna og hjúkrunarfræðinga „Að segja slæmar fréttir“. Því fellur slökunin niður kl 10 og skrifstofan verður lokuð en Opna húsið "Skapandi handverk og spjall" verður á Kaffi Ilm frá kl 13-16
Lesa meira
13.09.2017
Grein sem birtist í Vikudegi 08.09.2017
Slökun er á fimmtudögum en ekki miðvikudögum!
Lesa meira
05.09.2017
ÚT Í LÍFIÐ
Krabbameinsfélag Akureyrar og nágrennis (KAON) fer af stað með námskeið fyrir karla og konur, sem greinst hafa með krabbamein og eru að ljúka eða hafa nýlega lokið meðferð (með krabbameinsmeðferð er átt við skurðaðgerð og /eða lyfjameðferð), þann 3. október næstkomandi.
Fræðsla og umræður um lífið eftir krabbameinsmeðferð. Hámark 10 manns í hóp. Byggt á aðferðum hugrænnar atferlismefðerðar.
Núvitund og slökun í byrjun og lok tíma.
Leiðbeinendur:
Regína Ólafsdóttir sálfræðingur og Katrín Ösp Jónsdóttir hjúkrunarfræðingur.
Hópurinn hittist einu sinn í viku á þriðjudögum frá 10.00 – 11.30. Fyrsti tími er þriðjudaginn 3. október næstkomandi og þar eftir vikulega til og með 5. desember 2017.
Námskeiðið fer fram í húsnæði KAON Gleraárgötu 24.
Vinsamlegast sendið fyrirspurnir og skráningu til Regínu á netfangið reginaola@krabb.is eða í síma 461-1470 á þriðjudögum milli 13-16.
Allir þátttakendur verða boðaðir í kynningarviðtal áður en námskeið hefst.
Lesa meira
24.08.2017
Krabbameinsfélag Akureyrar og nágrennis veturinn 2017-2018
Starfsmenn félagsins eru:
Halldóra Björg Sævarsdóttir (Dóra), framkvæmdarstjóri og textíl-framhaldsskólakennari
Katrín Ösp Jónsdóttir, verkefnastjóri og hjúkrunarfræðingur
Regína Ólafsdóttir, sálfræðingur
Sjálfboðaliðar félagsins eru:
Magnfríður S. Sigurðardóttir (Magna) , iðjuþjálfi
Brynjólfur Ingvarsson, geðlæknir.
Samstarfsaðili: Sigrún Jónsdóttir, sjúkraþjálfari. Sund á mánudögum og fimmtudögum.
Sjá nánar með því að ýta á fréttina
ATh. birt með fyrirvara um breytingar
Lesa meira
18.08.2017
Kæru vinir og velunnarar,
Reykjavíkurmaraþonið er á morgun og við hvetjum ykkur til að heita á þá 27 hlaupara sem hlaupa til styrktar Krabbameinsfélagi Akureyrar og nágrennis.
Við erum þeim ómetanlega þakklát!
Styrkirnir eru meðal annars nýttir í sálfræðiviðtöl fyrir þá sem glíma við krabbamein og aðstandendur þeirra hjá Sálfræðiþjónustu Norðurlands. Einnig aðstoðum við fólk að borga fyrir gistingu í Reykjavík þegar fólk þarf að fara í meðferð þangað. Í vetur verða nokkrir hópar í gangi svo sem aðstandendahópur, hópur fyrir fólk sem er að ljúka meðferð, hópur fyrir fólk sem hefur nýlega greinst með krabbamein, hópur fyrir fólk sem hefur misst maka úr krabbameini.
Við verðum með hvatningastöð við Ægissíðu á móti Dunhaga og hlökkum til að sjá ykkur sveitt og sæl
Hér má heita á hlauparana: https://www.hlaupastyrkur.is/godgerdafelog/charity/285/krabbameinsfelag-akureyrar-og-nagrennis
Lesa meira