17.10.2016
Fræðsla um sogæðabjúg verður á miðvikudaginn nk frá klukkan 17:30- 19:00. Það verða þær Þórdís og Hulda sjúkraþjálfarar á Bjargi sem sjá um fræðsluna en þær komu líka til okkar í fyrra og við höfum fengið að heyra frá mörgum að þessi fræðsla hafi verið virkilega góð og skemmtileg:)
Allir velkomnir, að kostnaðarlausu, á meðan húsrúm leyfir:)
Kaffi og léttar veitingar
Krabbameinsfélag Akureyrar og nágrennis
Glerárgata 24 (á móti Greifanum, á annarri hæð fyrir ofan VÍS )
Lesa meira
14.10.2016
Við þökkum kærlega fyrir frábæran dag! Hér komu á milli 60-70 manns :) Við vonum að þið hafið notið dagsins með okkur :)
Elsku Gaman Saman skvísurnar Andrea og Guðríður- takk fyrir skemmtilega göngu, við eigum eftir að fá ykkur til okkar aftur:) Bakaríið við brúnna sendi tvo starfsmenn með heitt súkkulaði, sallöt, bleika köku og brauð:) Axels bakarí gaf okkur rosalegt magn af kringlum og Kristjáns bakarí gaf fullt af kleinum:) Kex smiðjan lét sitt ekki eftir liggja frekar en vanalega og sendi okkur fullan kassa af snúðum og kexi (sem mun nýtast okkur áfram) og Nýja kaffibrennslan sendi okkur fullt af kaffi sem einnig mun nýtast áfram. Ásprent gaf okkur auglýsinguna í Dagskránni.
Takk allir fyrir aðstoðina og komuna í dag :)
Það verður margt á dagskrá í vetur og það næsta sem er á dagskrá er fræðsla um Sogæðabjúg miðvikudaginn 19 okt kl 17.30
Lesa meira
14.10.2016
-
14.10.2016
Ágætu Akureyringar og nærsveitungar!
Við þökkum kærlega fyrir hlýhug og ómetanlegan stuðning við verkefni bleiku slaufunnar síðustu 10 ár!
Gaman Saman skvísurnar Andrea og Guðríður, ætla að bjóða uppá bleika göngu föstudaginn 14.október. Gangan verður leikandi létt og við allra hæfi þar sem gleðin verður alls ráðandi.
Lagt verður af stað frá KAON, Glerárgötu 24(planið hjá VÍS) kl. 14:30.
Eftir göngu verður boðið uppá léttar veitingar í sal KAON
Allir hjartanlega velkomnir!
Með bestu kveðjur
Krabbameinsfélag Akureyrar og nágrennis (KAON)
Lesa meira
10.10.2016
Við viljum vekja athygli á skemmtilegu framtaki Amtsbókasafnsins. Þau buðu félaginu að vera heiðursfélagi á sýningunni BLEIKUR OKTÓBER. Við erum mjög þakklát fyrir fallega og vel framsetta sýningu sem stendur allan október. Hvetjum alla til að kíkja á Amtið, sjón er sögu ríkari. Sýningin er sett upp í tilefni af átaksverkefni Krabbameinsfélagsins gegn krabbameinum í konum, Bleiku slaufunni sem í ár er tileinkað brjóstakrabbameini.
Lesa meira
10.10.2016
Þorbjörg Ingvadóttir og Jóhanna Júlíusdóttir hafa unnið gríðarlega gott starf í þágu félagsins. Félagið þakkar þeim vel unnin störf, það var skemmtilegt kvöld haldið þann 4.október þar sem nýir og eldri starfsmenn og stjórnarmeðlimir komu saman og áttu góða stund. Halldóra Björg Sævarsdóttir er þar með orðin framkvæmdastjóri KAON og Katrín Ösp var ráðin inn sem hjúkrunarfræðingur félagsins. Sigrún Jónsdóttir sjúkraþjálfari starfar einnig áfram fyrir félagið.
Lesa meira
07.10.2016
Við viljum vekja athygli á nýrri síðu sem við höfum einnig opnað á Facebook - endilega líkið við síðuna þar til að fylgjast með því sem er að gerast hjá félaginu. Sjá linkinn á síðuna með því að lesa nánar.
Lesa meira
11.09.2016
KAON hefur núna sett nýja heimasíðu í loftið - það er ósk okkar að hún nýtist sem best - allar ábendingar eru vel þegnar og vefurinn verður í mótun.
Lesa meira
08.09.2016
Skrifstofa Krabbameinsfélagsins á Akureyri að Glerárgötu 24, 2.hæð (fyrir ofan VÍS) er opin mánudaga, þriðjudaga og miðvikudaga frá klukkan 13:30-16:00. Símatími er einnig þessa daga í síma 461-1470. Netfangið okkar er kaon@simnet.is og erum við líka á Facebook. Katrín Ösp Jónsdóttir hjúkrunarfræðingur starfar hjá félaginu og eru viðtöl við hana eftir samkomulagi. Við hvetjum fólk til að nýta sér það sem í boði er og tökum vel á móti öllum sem líta við hjá okkur á skrifstofunni.
Lesa meira