Viðtöl í boði á Húsavík þann 3. apríl
20.03.2024
Þekkir þú starfsemi Krabbameinsfélags Akureyrar og nágrennis?
Ráðgjafi frá Krabbameinsfélaginu býður upp á viðtöl í Bjarnarhúsi, miðvikudaginn 3. apríl. Viðtölin eru í boði bæði fyrir eintaklinga sem greinst hafa með krabbamein og aðstandendur.
Til að bóka viðtal er hægt að hringja í félagið í síma 461-1470 eða með því að senda póst á kaon@krabb.is.
Þeir sem komast ekki en hafa áhuga á að fá upplýsingar geta hringt í félagið.
Kær kveðja starfsmenn Krabbameinsfélags Akureyrar og nágrennis