Uppgjör á Bleikum október - 8. nóvember
31.10.2024
Uppgjör á Bleikum október - 8. nóvember
Föstudaginn 8. nóvember ætlar Krabbameinsfélag Akureyrar og nágrennis að loka bleikum október með því að bjóða upp á viðburð í Hofi.
Hvenær: 8. nóvember kl. 16:00-18:00.
Hvar: Menningarhúsinu Hofi, Akureyri.
Dagskrá
- Streitan, taugakerfið og styrkjandi leiðir - Lóa Björk Ólafsdóttir hjúkrunarfræðingur og ráðgjafi frá Ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélagsins.
- Slaufar krabbamein kynlífi? - Áslaug Kristjánsdóttir hjúkrunar- og kynfræðingur.
- Afhending á ágóða söfnunar Dekurdaga.
- Ljóða flutningur - Sigríður Soffía Níelsdóttir, hönnuður bleiku slaufunnar og ljóðskáld.
Viðburðinn er opinn öllum og aðstandendur eru hvattir til að mæta.
Kaffi og léttar veitingar í boði.
Hér er slóð á viðburðinn á Facebook.
Viðburðurinn er kostaður af Velunnurum Krabbameinsfélagsins.