Reykjavíkurmaraþon
Kæru vinir og velunnarar,
Reykjavíkurmaraþonið er á morgun og við hvetjum ykkur til að heita á þá 27 hlaupara sem hlaupa til styrktar Krabbameinsfélagi Akureyrar og nágrennis.
Við erum þeim ómetanlega þakklát!
Styrkirnir eru meðal annars nýttir í sálfræðiviðtöl fyrir þá sem glíma við krabbamein og aðstandendur þeirra hjá Sálfræðiþjónustu Norðurlands. Einnig aðstoðum við fólk að borga fyrir gistingu í Reykjavík þegar fólk þarf að fara í meðferð þangað. Í vetur verða nokkrir hópar í gangi svo sem aðstandendahópur, hópur fyrir fólk sem er að ljúka meðferð, hópur fyrir fólk sem hefur nýlega greinst með krabbamein, hópur fyrir fólk sem hefur misst maka úr krabbameini.
Við verðum með hvatningastöð við Ægissíðu á móti Dunhaga og hlökkum til að sjá ykkur sveitt og sæl <3
Takk kærlega fyrir stuðninginn!
Hér má heita á hlauparana: https://www.hlaupastyrkur.is/godgerdafelog/charity/285/krabbameinsfelag-akureyrar-og-nagrennis