Opið hús 22. ágúst
18.08.2022
Mánudaginn 22. ágúst verður opið hús á skrifstofu félagsins milli 17-18 að Glerárgötu 34, 2. hæð.
Opna húsið er hugsað fyrir alla sem hafa áhuga að kynnast starfsemi félagsins og sjá hvað er í boði fyrir fólk sem greinist með krabbamein og aðstandendur þeirra.
Léttar veitingar í boði og allir velkomnir.
Við minnum á að hópastarf fyrir konur byrjar 1. september og fyrir karla 17. september.