Ólafsfjörður og Siglufjörður

Þekkir þú stafsemi Krabbameinsfélags Akureyrar og nágrennis? 

Starfsmenn frá Krabbameinsfélagi Akureyrar og nágrennis verða á HSN Hornbrekku, Ólafsfirði föstudaginn 26. janúar milli kl.10:00 - 11:00 og HSN Siglufirði, milli kl.13:00-14:00. 

Hægt er að mæta til að fá upplýsingar um félagið og hvaða þjónusta er í boði fyrir einstaklinga sem greinst hafa með krabbamein og aðstandendur þeirra.

Þeir sem komast ekki en hafa áhuga á að fá upplýsingar geta hringt í félagið.

Kær kveðja starfsmenn Krabbameinsfélags Akureyrar og nágrennis