Oddfellowstúkur á Akureyri styrkja félagið myndarlega
Styrkurinn er ómetanlegur fyrir áframhaldandi rekstur félagsins
Krabbameinsfélagi Akureyrar og nágrennis barst á dögunum myndarlegur styrkur að upphæð 2.250.000 kr frá Oddfellowstúkum Akureyrar. Í gegnum tíðina hefur Oddfellow styrkt starfsemi félagsins reglulega og er þessi veglegi styrkur nú svar stúkanna við neyðarkalli félagsins vegna erfiðrar fjárhagsstöðu þess. Við sem störfum hjá félaginu erum snortin af velvild Oddfellowa í okkar garð og því trausti sem þau sýna starfseminni.
Með gjöfinni fylgja einkunnarorð Oddfellowa; vinátta - kærleikur - sannleikur. Merkingu þeirra tökum við með okkur í það góða starf sem Oddfellow gerir okkur kleift að sinna áfram.
Hafið bestu þakkir fyrir kæru vinir, með góðri kveðju - stjórn og starfsmenn Krabbameinsfélags Akureyrar og nágrennis.