NorðanKraftur – Sjálfsmildi í eigin garð - AFLÝST

ÞESSUM VIÐBURÐI HEFUR VERIÐ AFLÝST!

Krabbameinsfélagið á Akureyri og nágrennis í samstarfi við Kraft stendur fyrir fræðslu og samveru fyrir ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur fimmtudaginn 30. janúar, kl. 17:00-18:00.

Guðrún Arngrímsdóttir hjá Sjálfsrækt verður með erindi um sjálfsmildi í eigin garð.

Tímasetning: Fimmtudagurinn 30. janúar kl. 17:00-18:00.
Staðsetning: Húsnæði KAON, Glerárgata 34, 2. hæð.

Viðburðurinn er fyrir einstaklinga á aldrinum 18-45 ára sem greinst hafa með krabbamein og aðstandendur á öllum aldri.

Fyrir þetta erindi þarf að fá skráningu, skráning fer fram á kaon@krabb.is eða í síma 461-1470. Gefa þarf upp nafn, fjölda og símanúmer.

Hvetjum öll sem eiga erindi til að mæta og eiga saman stund meðal jafningja sem að skilja þig.