NorðanKraftur - samkennd í eigin garð - FRESTAÐ

Vegna veikinda er þessum viðburði frestað!

Kraftur í samstarfi við Krabbameinsfélagið á Akureyri og nágrennis stendur fyrir fræðslu og samveru fyrir ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur fimmtudaginn 14. nóvember kl. 17-18.

Hrafnhildur Reykjalín Vigfúsdóttir hjá Sjálfsrækt verður með erindi um sjálfsmildi í eigin garð.

Tímasetning: Fimmtudagurinn 14. nóvember kl. 17-18.
Staðsetning: Húsnæði KAON, Glerárgata 34, 2.hæð.

Viðburðurinn er fyrir unga einstaklinga á aldrinum 18-40 ára sem greinst hafa með krabbamein og aðstandendur á öllum aldri. Boðið verður upp á léttar veitingar.

Fyrir þetta erindi þarf að fá skráningu, skráning fer fram á kaon@krabb.is eða í síma 461-1470. Gefa þarf upp nafn, fjölda og símanúmer.

Hvetjum öll sem eiga erindi til að mæta og eiga saman stund meðal jafningja sem að skilja þig.