NorðanKraftur-Bjargráð í veikindum

Kraftur í samstarfi við Krabbameinsfélagið á Akureyri og nágrennis stendur fyrir fræðslu og samveru fimmtudaginn 12.september frá kl. 17-19.
 
Anna Sigurðardóttir sálfræðingur mun vera með erindi um gagnleg bjargráð í veikindum og boðið verður upp á samræður eftir á. Þá mun Kraftur og Krabbameinsfélag Akureyrar vera á staðnum og kynna starfsemi sína og þann stuðning sem þau veita.
 
Tímasetning: Fimmtudagur 12.sept. kl. 17-19
Staðsetning : Mói Bistro Hofi, Strandgötu 12, 600 Akureyri
 
Boðið verður upp á súpu og léttar veitingar.
 
Viðburðurinn er opinn öllum, en vinsamlegast skráið ykkur í forminu hér: https://forms.office.com/e/CvA2ERNTWa
 
Fyrir frekari upplýsingar er hægt að hafa samband við Kraft, kraftur@kraftur.org, eða Krabbameinsfélag Akureyrar og nágrennis, kaon@krabb.is.
 
Hlökkum til að sjá ykkur.