Námskeið fyrir einstaklinga sem eru með krabbamein eða hafa nýlokið krabbameinsmeðferð
Námskeið fyrir einstaklinga sem eru með krabbamein eða hafa nýlokið krabbameinsmeðferð
Námskeiðið hefst 1. febrúar og er vikulega í þrjú skipti á miðvikudögum kl.10:00 – 12:15.
Námskeiðið er vettvangur til að hitta jafninga og fá fræðslu. Málefni sem verður farið yfir er t.d. líf í kjölfar krabbameins, mikilvægi hreyfingar, næringar og andlegrar vellíðunnar.
Umsjón með námskeiðinu hefur Jenný Valdimarsdóttir hjúkrunarfræðingur ásamt fleiri leiðbeinendum.
Hægt er að skrá sig með því að hringja í síma 461-1470 eða senda tölvupóst á kaon@krabb.is. Gefa þarf upp fullt nafn og símanúmer.
Það er ekkert þátttökugjald, námskeiðið styrkt af Velunnurum Krabbameinsfélagsins.