Leshópur félagsins byrjar 5. október

Leshópur Krabbameinsfélags Akureyrar og nágrennis mun hittast þrisvar sinnum fram að áramótum og er fyrsti hittingur miðvikudaginn 5. október kl: 10.30 á skrifstofu félagsins. Í fyrsta hitting er óskað eftir hugmyndum að bókum til að lesa. Margrét Baldursdóttir sjálfboðaliði mun stýra hópnum. 

 

Miðvikudaginn 5. október kl: 10:30

Miðvikudagurinn 2. nóvember kl: 10:30

Miðvikudaginn 7. desember kl.10:30

 

Það þarf ekki að skrá sig í hópinn og nóg er bara að mæta og taka þátt. Tekið er vel á móti nýjum meðlimum.


Bækur, spjall & kaffi, getur ekki klikkað :)