Krabbameinsleit: tilkynning til kvenna!
Krabbameinsfélag Akureyrar og nágrennis vekur athygli á að nú er hlé á skimunum fyrir krabbameini vegna covid-19 á Akureyri. Í frétt á vef HSN kemur fram að:
„Unnið er að því að flytja leghálsskimanir á Heilsugæslustöðina á Akureyri en vegna lokana vegna Covid-19 og flutnings frumurannsókna frá Krabbameinsfélagi Íslands þá mun það dragast og verður líklega ekki fyrr en um áramót. Þetta verður þó endurskoðað eftir miðjan nóvember ef smitum fækkar nægilega mikið á svæðinu.“
Við biðjum konur um að fylgjast vel með:
- Send verður út tilkynning á heimasíðu HSN á Akureyri þegar bókanir hefjast í leghálsskimun. Konur sem eru í þéttara eftirliti vegna frumubreytinga munu verða í forgangi og geta látið setja sig á biðlista núna en geta einnig leitað eftir ráðleggingum hjá Leitarstöð Krabbameinsfélags Íslands
- Send verður út tilkynning á heimasíðu SAk þegar skimun brjóstakrabbameina hefst aftur á SAk, þess ber þó að geta að áfram er opið fyrir brjóstarannsóknir á SAk séu einkenni til staðar.
- Við hvetjum konur sem finna til einkenna að leita til heimilislæknis
- Konur geta skoðað skimunarsögu sína inn á vefnum island.is
- Við hvetjum konur til þess að vera duglegar að skoða sjálfar brjóstin, sjá kennslumyndband hér.
Við minnum einnig á að þær konur sem hafa greinst með krabbamein geta leitað ráðgjafar og stuðnings hjá okkur með því að panta tíma hjá ráðgjafa í síma 461-1470 eða með því að senda póst á katrin@krabb.is.
Það skiptir máli að konur eigi greiðan aðgang að skimunum heimabyggð og eigum við í góðu samtali við Leitarstöðina, Sjúkrahúsið á Akureyri og Heilbrigðisstofnun Norðurlands um framhald og framtíð skimana hér á Akureyri. Við munum setja inn tilkynningar um þær breytingar sem verða um leið og þær berast.
Með bestu kveðju, starfsfólk Krabbameinsfélags Akureyrar og nágrennis.