Kótilettukvöld í tilefni Mottumars
07.02.2024
Krabbameinsfélag Akureyrar og nágrennis heldur Kótilettukvöld þann 7. mars í tilefni Mottumars.
Viðburðurinn verður haldinn á Vitanum, Strandgötu 53 og byrjar kl.18:30 en húsið opnar kl.18:00.
Kótiletturnar koma að sjálfsögðu frá Kjarnafæði Norðlenska.
UPPSELT!
100 sæti í boði!
Miðaverð er að lágmarki 6.000 kr.
Hægt er að panta miða með því að senda tölvupóst á kaon@krabb.is eða hringja í síma 461-1470.
Hljómsveitin Ástarpungarnir taka nokkur vel valin lög og Hrund Hlöðversdóttir syngur og spilar á harmonikku.
Happdrættið verður auðvitað á sínum stað.
Vonandi sjáum við ykkur sem flest!