Hvíldarhelgi á Húsavík 15.-16. mars 2025
Krabbameinsfélag Akureyrar og nágrennis býður upp á hvíldarhelgi á Húsavík 15.-16. mars.
Helgin er fyrir einstaklinga sem eru með krabbamein eða hafa nýlokið meðferð, í boði er að taka með sér aðstandenda.
Innifalið
- Dvöl á Fosshótel Húsavík í eina nótt.
- Hádegismatur.
- Tveggja rétta kvöldverður á laugardagskvöldinu.
- Morgunverðarhlaðborð.
- Aðgangur í Geosea.
Í boði verður létt fræðsla, spjall, gönguferðir og fleiri notalegar samverustundir.
Þátttökugjald er 5.000 krónur á mann, greiðist við skráningu.
Takmarkað pláss er í ferðina.
*Ferðin er háð þátttöku, ef ekki næst nægileg þátttaka verður ferðin feld niður.
Einstaklingar þurfa að koma sér sjálfir á staðinn en hægt er að hafa samband við félagið ef einhverjum vantar far.
Til þess að skrá sig er hægt að senda póst á kaon@krabb.is eða hringa í síma: 461-1470. Gefa þarf upp fullt nafn/nöfn, símanúmer og netfang. Frekari upplýsingar verða gefnar upp við skráningu.