Hópastarf haustið 2024

Hópastarfið hefur göngu sína eftir sumarfrí

 

Stuðningshópur fyrir karla sem greinst hafa með krabbamein

Fyrsti hittingur er miðvikudaginn 11. september.

Hópurinn hittist á miðvikudögum frá kl.15:00-16:00 á Kaffihúsinu í Menningarhúsinu Hofi, 2. hæð.

Það þarf ekki að skrá sig heldur er nóg að mæta.

Sjálfboðaliði leiðir hópinn, nýir félagar velkomnir!

Kaffi og spjall í góðum félagsskap.

 

Stuðningshópur fyrir konur sem greinst hafa með krabbamein

Fyrsti hittingur er fimmtudaginn 19. september.

Hópurinn hittist annan hvorn fimmtudag kl.13:30 á Kaffihúsinu í Menningarhúsinu Hofi, 2. hæð.

Konurnar koma gjarnan með handverk en margar mæta einfaldlega til þess að njóta félagsskaparins og kaffisopans.

Það þarf ekki að skrá sig heldur er nóg að mæta.

Sjálfboðaliði leiðir hópinn, nýir félagar velkomnir!

Kaffi og spjall í góðum félagsskap.

 

Dagsetningar hittinga

  • 19. september
  • 3. október
  • 17. október
  • 31. október
  • 14. nóvember
  • 28. nóvember
  • 12. desember

 

Leshópur

Nánari upplýsingar síðar.