Fræðsla fyrir aðstandendur
23.04.2018
Krabbameinsfélag Akureyrar og nágrennis býður upp á fræðslu fyrir aðstandendur krabbameinsgreindra.
Fræðslan fer fram miðvikudagskvöldið 25.apríl, kl.19:00 í húsnæði Krabbameinsfélags Akureyrar og nágrennis, Glerárgötu 24.
Þemað er stuðningur við þann veika.
Regína Ólafsdóttir sálfræðingur og Brynjólfur Ingvarsson geðlæknir verða á staðnum.
Boðið verður upp á léttar veitingar, hlökkum til að sjá ykkur.