Fjarnámskeið: Núvitund og samkennd
19.01.2022
Fjarnámskeið: Núvitund og samkennd
Á námskeiðinu verða kenndar ýmsar grunnæfingar í núvitund og samkennd, auk fræðslu, umræðna og heimaverkefna. Við lærum að tileinka okkur leiðir til að sýna okkur meiri mildi og skilning þegar eitthvað bjátar á í stað gagnrýni.
- Leiðbeinandi er Anna Dóra Frostadóttir klínískur sálfræðingur.
Fjarnámskeiðið hefst þriðjudaginn 1. febrúar og er fimm skipti, vikulega á þriðjudögum
kl. 13:00-15:00. Ekkert þátttökugjald.
Skráning á radgjof@krabb.is eða síma 800 4040