Fjarnámskeið: Bjargráð við kvíða
09.08.2023
Fjarnámskeið: Bjargráð við kvíða
Á námskeiðinu er lögð áhersla á það hvernig koma má auga á streituviðbrögð og langvarandi kvíða.
Auk þess sem farið verður yfir nokkur hagnýt bjargráð til að takast á við kvíða og streitu í daglegu lífi.
Fjarnámskeiðið verður mánudaginn 28. ágúst kl. 13:00-16:00. Þátttakendur fá senda slóð til að fara inn á.
Umsjón með námskeiði hefur Þorri Snæbjörnsson, sálfræðingur hjá Krabbameinsfélaginu.
- Skráning á radgjof@krabb.is eða í síma 800 4040.
- Námskeiðið er ætlað þeim sem greinst hafa með krabbamein og aðstandendum.