Hvað er í boði í vetur fyrir einstaklinga sem greinst hafa með krabbamein?

Skrifstofa Krabbameinsfélagsins á Akureyri að Glerárgötu 24, 2.hæð (fyrir ofan VÍS) er opin mánudaga, þriðjudaga og miðvikudaga frá klukkan 13:30-16:00.  Símatími er einnig þessa daga í síma 461-1470.  Netfangið okkar er kaon@simnet.is og erum við líka á Facebook.  Katrín Ösp Jónsdóttir hjúkrunarfræðingur starfar hjá félaginu og eru viðtöl við hana eftir samkomulagi.  Við hvetjum fólk til að nýta sér það sem í boði er og tökum vel á móti öllum sem líta við hjá okkur á skrifstofunni.