Bleik ganga 14. okt 2016
Við þökkum kærlega fyrir frábæran dag! Hér komu á milli 60-70 manns :)Við vonum að þið hafið notið dagsins með okkur :)
Elsku Gaman Saman skvísurnar Andrea og Guðríður- takk fyrir skemmtilega göngu, við eigum eftir að fá ykkur til okkar aftur:) Bakaríið við brúnna sendi tvo starfsmenn með heitt súkkulaði, sallöt, bleika köku og brauð:) Axels bakarí gaf okkur rosalegt magn af kringlum og Kristjáns bakarí gaf fullt af kleinum:) Kex smiðjan lét sitt ekki eftir liggja frekar en vanalega og sendi okkur fullan kassa af snúðum og kexi (sem mun nýtast okkur áfram) og Nýja kaffibrennslan sendi okkur fullt af kaffi sem einnig mun nýtast áfram. Ásprent gaf okkur auglýsinguna í Dagskránni.
Takk allir fyrir aðstoðina og komuna í dag :)
Það verður margt á dagskrá í vetur og það næsta sem er á dagskrá er fræðsla um Sogæðabjúg miðvikudaginn 19 okt kl 17.30