Aðalfundur 24.apríl 2018

Aðalfundur Krabbameinsfélags Akureyrar og nágrennis var haldinn þriðjudaginn 24. apríl 2018 kl. 20:00 í húsnæði KAON.

Dagskrá fundarins voru venjuleg aðalfundarstörf. Ásamt því að fjórir gengu úr stjórn og fjórir nýjir komu inn í þeirra stað.

Úr stjórn gengu Hlíf Guðmundsdóttir formaður, Jón Þ. Óskarsson gjaldkeri, Guðbjörg Antonsdóttir ritari og Lilja Sverrisdóttir meðstjórnandi.

Krabbameinsfélag Akureyrar og nágrennis þakkar þeim kærlega fyrir vel unnin störf í gegnum tíðina en sum þeirra hafa starfað í um 20 ár.

Fjórir nýjir einstaklingar buðu sig fram í stjórn, það eru þau Guðrún Dóra Clarke, Brynjólfur Ingvarsson, Anna Hulda Júlíusdóttir og Lára Betty Harðardóttir.

Bjóðum við þau hjartanlega velkomin og óskum þeim velfarnaðar í starfi.

 

Stjórn