Aðalfundur 2023
Aðalfundur Krabbameinsfélags Akureyrar og nágrennis verður haldinn mánudaginn 8.maí 2023 kl.17:00.
Fundurinn verður haldinn í þjónustumiðstöð félagsins, Glerárgötu 34, annari hæð.
Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf, lagabreytingar og önnur mál.
Atkvæðisrétt á aðalfundi, auk stjórnar, hafa allir þeir sem greitt hafa árgjald síðastliðins starfsárs til félagsins.
Stjórn félagsins vantar öfluga liðsfélaga og biðjum við áhugasama um að senda tölvupóst á kaon@krabb.is. Látið fylgja með stutta kynningu og hvers vegna viðkomandi hefur áhuga á að ganga í stjórn. Stjórn félagsins hvetur sérstaklega fólk frá nærsveitum Akureyrar til að hafa samband.
Með bestu kveðju, stjórn Krabbameinsfélags Akureyrar og nágrennis.