Aðalfundur 2022
Aðalfundur Krabbameinsfélags Akureyrar og nágrennis verður haldinn fimmtudaginn 12. maí 2022 kl 19:30.
Fundurinn verður haldinn í þjónustumiðstöð félagsins, Glerárgötu 34, annari hæð.
Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf.
Atkvæðisrétt á aðalfundi, auk stjórnar, hafa allir þeir sem greitt hafa félagsgjald síðastliðins starfsárs til félagsins.
Þið eruð öll velkomin á fundinn og sérstaklega þau sem hafa áhuga á að ganga í stjórn félagsins!
Stjórn félagsins vantar öfluga liðsfélaga og biðjum við áhugasama um að senda tölvupóst á kaon@krabb.is fyrir 5.maí.
Stjórn félagsins hvetur sérstaklega fólk frá nærsveitum Akureyrar til að hafa samband, en starfssvæði okkar er frá Siglufirði í vestri og austur að Stóru Tjörnum í Fnjóskadal.
Með bestu kveðju, starfsfólk og stjórn Krabbameinsfélags Akureyrar og nágrennis.