- 150 stk.
- 18.03.2019
Krabbameinsfélag Akureyrar og nágrennis bauð til málþings fimmtudaginn 14. mars 2019 undir yfirskriftinni: Karlmenn og krabbamein.
Markmið málþingsins var að fræða karlmenn um algeng einkenni krabbameina og er hluti af vitundarvakningu um krabbamein hjá karlmönnum.
Málþingið – dagskrá Karlakór Akureyrar – Geysir. Opnunarávarp - Starfsmenn KAON. Ásthildur Sturludóttir - Bæjarstjóri Akureyrar. Krabbamein í karlmönnum, einkenni - Eiríkur Jónsson, þvagfæraskurðlæknir. Reynslusaga - Ingimar Jónsson. Breytingar á sjálfsmynd karlmanna í veikindum - Dr. Ásgeir R. Helgason, dósent í sálfræði og sérfræðingur hjá KÍ. Karlaklefinn - Guðmundur Pálsson, vefstjóri Krabbameinsfélags Íslands. Fyrirspurnir og umræður. Karlakór Akureyrar – Geysir. Fundarstjóri: Friðbjörn Reynir Sigurðsson, Lyf- og krabbameinslæknir.
Ljósmyndasýningin Meiri Menn, sem unnin var í tengslumi við Mottumars, var til sýnis á málþinginu.
Þeir sem að málþinginu komu eru Krabbameinsfélag Akureyrar og nágrennis, Krabbameinsfélag Íslands, Norðurorka, N4, Akureyrarstofa, JMJ Herradeild.
Ljósmyndir: Auðunn Níelsson.