- 17 stk.
- 15.10.2019
Bleikt boð hjá KAON
Fimmtudaginn 10.október hélt Krabbameinsfélag Akureyrar og nágrennis Bleikt boð í tilefni af Bleikum október.
Húsið opnaði kl.13:00 og kom fjöldi fólks í hús.
Bakaríið við Brúna og Ölgerðin sáu um glæsilegar veitingar handa gestunum.
Regína og Katrín starfsmenn KAON buðu gesti velkomna og kynntu félagið.
Tvenn tólnlistar atriði voru flutt, Hafdís Þorbjörnsdóttir söng lagið Lífsbókin undir undirspili Björns H.Reynissons. Einnig kom fram Ríkey Svanfríður Kristínardóttir, hún spilaði nokkur lög á píanó, þar á meðal eitt frumsamið.
Þorgerður Sigurðardóttir í Göngum saman félaginu kom og kynnti starfssemi félagssins á Akureyri.
Á sama tíma fór einnig fram námskeiðið Helklað utan um Krukkur undir stjórn Guðrúnar Nunnu.
Við hjá Krabbameinsfélagi Akureyrar og nágrennis þökkum öllum þeim sem gáfu sér tíma og litu við hjá okkur þennan dag kærlega fyrir komuna og stuðninginn í Bleikum október.