Sýningin Bleikur október á Amtsbókasafninu
10.10.2016
Við viljum vekja athygli á skemmtilegu framtaki Amtsbókasafnsins. Þau buðu félaginu að vera heiðursfélagi á sýningunni BLEIKUR OKTÓBER. Við erum mjög þakklát fyrir fallega og vel framsetta sýningu sem stendur allan október. Hvetjum alla til að kíkja á Amtið, sjón er sögu ríkari. Sýningin er sett upp í tilefni af átaksverkefni Krabbameinsfélagsins gegn krabbameinum í konum, Bleiku slaufunni sem í ár er tileinkað brjóstakrabbameini. Smelltu hér til að fara á vef bókasafnsins þar sem sjá má umfjöllun um sýninguna.